# Ísland, farsælda frón:
<{Island, lyckliga land. Islando, feliĉa lando}>

<Kodály, [Fa]=F> *

(
/Fa Fa /La TiTi /do o do /re doTi /do LaLa /Ti do o
/Ti LaTi /do TiSo /La a /La LaTi /doTi LaSo /Fa a a
)
'1{
Ísland! /farsælda/frón og hagsælda /hrímhvíta /móðir!
/Hvar er þín /fornaldar/frægð, /frelsið og /manndáðin /best?
}
'2{
/Allt er í heiminum hverfult, og stund þíns fegursta frama
lýsir, sem leiftur um nótt, langt fram á horfinni öld.
}
'3{
Landið var fagurt og frítt, og fannhvítir jöklanna tindar,
himininn heiður og blár, hafið var skínandi bjart.
}
'4{
Þá komu feðurnir frægu og frjálsræðishetjurnar góðu,
austan um hyldýpishaf, hingað í sælunnar reit.
}
'5{
Reistu sér byggðir og bú í blómguðu dalanna skauti;
ukust að íþrótt og frægð, undu svo glaðir við sitt.
}
'6{
Hátt á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur
ofan í Almannagjá, alþingið feðranna stóð.
}
'7{
Þar stóð hann Þorgeir á þingi er við trúnni var tekið af lýði.
Þar komu Gissur og Geir, Gunnar og Héðinn og Njáll.
}
'8{
Þá riðu hetjur um héröð, og skrautbúin skip fyrir landi
flutu með fríðasta lið, færandi varninginnn heim.
}
'9{
Það er svo bágt að standa' í stað, og mönnunum munar
annaðhvurt aftur á bak ellegar nokkuð á leið.
}
'10{
Hvað er þá orðið okkart starf í sex hundruð sumur?
Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg?
}
'11{
Landið er fagurt og frítt, og fannhvítir jöklanna tindar,
himininn heiður og blár, hafið er skínandi bjart.
}
'12{
En á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur
ofan í Almannagjá, alþing er horfið á braut.
}
'13{
Nú er hún Snorrabúð stekkur, og lyngið á lögbergi helga
blánar af berjum hvurt ár, börnum og hröfnum að leik.
}
'14{
/Ó þér /unglinga/fjöld og /Ísla2nds /fullorðnu /synir!
/Svona er /feðranna /frægð /fallin í /gleymsku o2g /dá!
}

<{
Isländsk folkton / Islanda popola kanto
Text av / Teksto de Jónas Hallgrímsson (1807 -1845) en jaro 1835
Tonstavat av / Tonsilabigi de Mattias Wiedersheim-Paul, Järna, Svedio 2005.
}>